Okkar áhersla er að veita alhliða bókhalds- og ráðgjafaþjónustu

traustur samstarfsaðili

BÓKHALD OG ÞJÓNUSTA veitir alhliða bókhaldsþjónustu

Bókarinn

Sér um daglega bókun, skil á virðisaukaskatti ef við á, minnir á gjalddaga og sér um almenn samskipti við viðskiptavini.

Launafulltrúinn

Sér um útreikning launa, sendir launaseðla rafrænt, sendir bankaskilagreinar til launagreiðanda og rafrænar skilagreinar til skattayfirvalda, lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Í byrjun nýs árs er sendur launamiði fyrra árs til skattayfirvalda.

Fjármálastjórinn

Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki kjósa að láta okkur sjá um fjármálastjórnun. Reynslan hefur sýnt að í flestum tilvikum minnkar kostnaður vegna dráttarvaxta og annarra gjalda sem falla til þegar greitt er of seint.

Ársreikningur / Framtal

Ársreikningur er ekki bara fyrir skattinn. Þegar ársreikningur er tilbúinn er gott að fara yfir hann með tilliti til hvað má betur fara í rekstri félagsins.

Áætlanagerð

Við bjóðum uppá mjög einfalda en skilvirka leið í áætlanagerð og þannig geta viðskiptavinir okkar fylgst vel með rekstrinum.

Fyrirtækjaráðgjöf

Við bjóðum viðskiptavinum okkar ráðgjöf á öllum sviðum er varða fjármál fyrirtækja, fjárhagslega endurskipulagningu og skipulagningu bókhaldsmála.

Stofnun félaga

Gegn föstu gjaldi stofnum við félag og skráum það á vsk- og launagreiðendaskrá ef við á. Það tekur u.þ.b. eina viku frá því að gögn eru undirrituð að fá kennitölu og hefja rekstur. Við önnumst einnig sameiningu, skiptingu og slit félaga.

Innleiðingar

Við bjóðum upp á ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu nýrra kerfa. Aðstoðum við þarfagreiningu og val á kerfi til innleiðingar og almennra notkunarmöguleika. Það getur sparað tíma, fé og fyrirhöfn að standa rétt að kaupum á nýjum kerfum og vanda vel allan undirbúning og uppsetningu.

Erfðafjárskýrslur

Við önnumst gerð erfðafjárskýrslna og aðstoðum erfingja við að skipta upp dánarbúum.

UM OKKUR

BÓKHALD OG ÞJÓNUSTA

Bókhald & þjónusta ehf var stofnað árið 2001 og hefur síðan þá lagt metnað í að veita persónulega þjónustu. Félagið hefur vaxið úr einum starfsmanni í 10 og erum við til húsa við Stórhöfða 21. Metnaður okkar liggur í að veita litlum og meðalstórum rekstraraðilum alhliða bókhalds- og ráðgjafarþjónustu fyrir sanngjarnt verð.

0 +
SKATTFRAMTÖL

Á ÁRI

0 +
LAUNAKEYRSLUR

Á MÁNUÐI

0 +
VIRÐISAUKASKATTSSKÝRSLUR

Á HVERJU TÍMABILI

ÖFLUGAR VIÐSKIPTALAUSNIR

Okkar áhersla er að veita alhliða bókhalds- og ráðgjafaþjónustu yfrir okkar viðskiptavini. Við leggjum mikið uppúr að vera með nýjustu tækni varðandi afstemmingar og erum öflug í gerð rafrænna reikninga.

Innifalið í okkar þjónustu felst einnig öflug ráðgjafaþjónusta, bæði rekstrarráðgjöf og skattaráðgjöf.

ÚRVALS BÓKHALDSÞJÓNUSTA

Bókhald og þjónusta veitir alhliða bókhaldsþjónustu sem inniheldur færslur bókhalds, skil á virðisaukaskatti, umsjón launa, gerð framtala og áætlana.

Meðal okkar viðskiptavina eru lítil og meðalstór fyrirtæki og einstaklingar með rekstur.

NÝJUSTU FRÉTTIR

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um lokunarstyrk 6 vegna stöðvunar á starfsemi í tengslum við sóttvarnaraðgerðir á tímabilinu 25. mars til og …

Móttaka á umsóknum um viðspyrnustyrki er hafin. Viðspyrnustyrkir eru ætlaðir þeim rekstraraðilum sem orðið hafa fyrir a.m.k. 60% tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. …

Tekjufallsstyrkir

Tekjufallsstyrkir eru til að styðja við rekstraraðila sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um þá gilda lög 118/2020, um tekjufallsstyrki. Markmið …

HAFÐU SAMBAND

    • HRINGDU Í SÍMA

      511-2930

    • SENDU OKKUR TÖLVUPÓST

      bokhald@ibokhald.is

    • STÓRHÖFÐI 21

      Opið virka daga 09:00 - 16:00

    • ÁREIÐANLEIKAKÖNNUN

      Smelltu hér

    BÓKHALD OG ÞJÓNUSTA

    Bókhald & þjónusta ehf var stofnað árið 2001 og hefur síðan þá lagt metnað í að veita persónulega þjónustu. Félagið hefur vaxið úr einum starfsmanni í 10 og erum við til húsa við Stórhöfða 21. Metnaður okkar liggur í að veita litlum og meðalstórum rekstraraðilum alhliða bókhalds- og ráðgjafarþjónustu fyrir sanngjarnt verð.